indie-folk-tronic tvíkeykið cocorosie skipa þær bianca og sierra casady. þær ólust ekki upp saman en voru sameinaðar fyrir nokkrum árum og hófu þá strax að sjóða saman- og skapa tónlist. framandi, seðjandi, heillandi tónlist undir sykursætum söng einkennir tónlist cocorosie og ég er ekki frá því að maður verði bara betri einstaklingur á að hlusta á músík þeirra, allavegana hef ég ekki getað annað en að hlustað daglega á þær eftir að mér var bent á hljómsveitina.svo fyrir þá sem þekkja til tónlistarinnar, eða verða gripnir ofsahrifningu, að þá munu þær halda tónleika á íslandi í maí á þessu ári. eiga tónleikar þeirra að vera sönn upplifun og svo ég vitni nú af event.is:"Áhorfendur geta aldrei vitað við hverju á að búast en stundum eru hátt í 10 manns með þeim á sviðinu; allt frá fiðluleikurum upp í "human beatbox". Myndvarpar og risatjöld eru notuð til að skapa sjónræna veislu og þar má allt eins sjá gamlar barnateiknimyndir sýndar hægt; áhrifin eru í senn drungaleg og barnslega sakleysisleg."
smelli hér inn laginu noah´s arc, titil laginu af nýjasta disknum þeirra, og myndbandinu við það
cocorosie - noah´s ark
myndbandið
skrifað af criticts 19:48 criticts