artic monkeys, bob dylan, clap your hands say yeah, deftones, franz ferdinand, guns n' roses, morrisey, placebo, sigur rós, the streets, tool, roger waters og kanye west.allt eru þetta staðfestir listamenn á hróaskeldu 2006 og get ég fullvissað mig um að allir ættu að geta fundið sér eitthvað til að hlusta á, ásamt því að það eru mörg önnur smærri bönd sem eru staðfest og gaman væri að heyra í. ekki má líka gleyma því að eru 101 dagur í hátíðina svo það eiga enn eftir að bætast tugir hljómsveita við þennan lista.
ég er búinn að pannta flugmiðann út svo nú er fátt annað hægt að gera en að naga sig í handabökin af spenningi og horfa á dagatalið á fimm mín fresti til að gá hvort þetta sé ekki alveg að fara að byrja. ég hvet líka alla sem hafa einhvern áhuga á að fara að skella sér þar sem þetta á eftir að vera frábær skemmtun, jafnvel ef þið hatið tónlist þá má alltaf skemmta sér með fólki hvaðan af úr heiminum.
ætla að smella hér tvem lögum með hljómsveitinni clap your hands say yeah þar sem hún er nýjust á listanum og var að gefa út sinn fyrsta disk nú ekki fyrir svo löngu. hress, skemmtileg indie tónlist sem vert er að hlusta á hvar sem er. þó ætla ég að segja að ef þið fílið ekki sönginn að þá skuluð þið ekkert vera að eyða of miklu púðri í að hlusta á þetta því hann er nánast það sem gerir plötu hljómsveitarinnar að því sem hún er.
clap your hands say yeah - heavy metal
clap your hands say yeah - gimme some salt
skrifað af criticts 20:11 criticts