band of horses framkvæma dapurlega indie-tónlist sem vert er að hlusta á. útpældar melódíur í bland við sjóðheitan, fágaðan og vandaðan söng hafa gert þá jafn fræga og þeir eru nú. tel ég að það líði ekki að löngu þar til músík þeirra fari að óma á öldum ljósvakans hér á íslandiband of horses - the funeral
ætla líka að bomba inn hérna lagi með hljómsveitinni danielson sem ég veit voða fátt um annað en að þetta er maður einn sem semur mest megnis af tónlistinni og syngur, fær svo systkini sín með sér í sönginn og eitthvað að hljóðfæraleiknum
danielson - did i step on your trumpet
svo virðist deiglan hér á akureyri ætla að koma sterk inn um páskana, halda tvenna tónleika sem ég tel að eigi eftir að vera magnaðir. miðvikudaginn 12. apríl mun benni hemm hemm ásamt kgb, hljómborðsleikara og hugmyndasnilling ensími halda tónleika en kgb mun koma fram sem bob justman sem er solo verkefni hans. seinna í vikunni laugardaginn 15. apríl munu jeff who? ásamt numer null koma fram á sama stað. tónleikar og tjútt í páskafríinu
skrifað af criticts 00:15 criticts