ske, hljómsveit sem er hvað þekktust fyrir að hafa innanborðs þau guðmund steingrímsson kenndan við kvöldþáttinn auk ágústu evu, betur þekkt sem silvía nótt, en ástæðan fyrir því að ég gerist svo kræfur að nefna þessa hljómsveit á nafn er vegna þess að ég fékk nú nýlega í hendurnar nýjasta grip þeirra, feelings are great, og líkar afburðar vel.góðar lagasmíðar, söngur og útsetningar einkenna plötuna og gera hana að virkilega hlustanlegum hlut. skífa þessi er þó örlítið dýpri og dimmari en fyrra verk þeirra "life, death, happiness and stuff" sem er útúrsmekkuð af hressleika.
það er hins vegar ekki ágústa eva sem ljáir ske rödd sína á þessum disk eins og ég hélt, heldur er það ungfrú ragnheiður gröndal sem syngur svona listavel í lögum eins og "beautiful flowers" og "girl at work". afsakaðu jónas að ég hafi logið því að þér að ágústa eva syngi á þessum disk, i just didin´t know any better. virðist vera svo að þær deili því með sér að syngja inn á plötur hljómsveitarinnar, jafnvel að ágústa eva hafi bara nóg á sinni könnu þessa dagana.
ekki hata hljómsveitina þó þið hatið gumma úr kvöldþættinum, gott band hér á ferð
ske - girl at work
skrifað af criticts 20:49 criticts