í nafni þess að í dag sé kominn föstudagur að þá ætla ég að smella framan í ykkur tveimur vel völdum lögum sem hafa átt miklu fylgi að fagna í itunes hjá mér.fyrra lagið er með hljómsveitinni wolf parade sem var að gera það virkilega gott árið 2005, var ofarlega á vel flestum listum yfir bestu plötur ársins. lagið it´s a curse stendur mikið upp úr og var það lagið sem fékk mig til í að renna í gegnum plötuna aftur, og aftur
wolf parade - it´s a curse
seinna lagið er með hljómsveitinni ..and you will know us by the trail of the dead sem er virkilega gott band sem hefur þá fjölbreyttni að hafa tvo trommara, allavegana á tónleikum. þó þetta sé hart nafn að þá er hljómsveitin ekki í þeim pakka að öskra úr sér inniflunum og fórna geitum, þetta er indie post-rokk hljómsveit sem er alveg þess virði að skoða
..and you will know us by the trail of the dead - will you smile again
gleymum því svo ekki að það er roskilde-festival næsta sumar eins og öll önnur sumur. nú gerir maður ekki sömu mistök og í fyrra með því að fara ekki, nú verður kíkkað til dk. hljómsveitir eins og franz ferdinant, placebo, sigur rós, the streets ásamt queens of the stoneage hafa ákveðið að mæta og enn eru 121 dagar í festivalið svo nóg af hljómsveitum eiga eftir að bætast við. allt um hljómsveitirnar sem búnar eru að skrá sig á festið má finna hér http://www.roskilde-festival.dk/object.php?obj=539000c&code=1
svo nú verður enginn plebbi og allir fara á roskilde þetta sumarið
skrifað af criticts 01:09 criticts