swallowed a star er diskur eftir daníel ágúst haraldsson, fyrverandi söngvara hljómsveitarinnar gus gus. platan kom út í lok síðasta sumars ef minnið er ekki að blekkja mig og hef ég alltaf ætlað mér að heyra þennan grip þar sem daníel gerði góða hluti með gus gus ásamt því að búið var að lofa þennan disk hástöfum. get ég þakkað tónlistargagnagrunni amtbókasafns akureyrar það að ég fékk loks að heyra þennan disk.diskurinn inniheldur hæfilega mikið af tæknirúnki í sambland við strengjatónlist og útkoman er nokkurs komnar fullorðins popp. platan er þung en ég hlustaði u.þ.b. þrisvar sinnum á hana og það er ekki hægt að segja annað en að hún verði betri og betri með tímanum, góðar útsetningar setja svip sinn á plötuna ásamt einstökum söng daníels, platan er heilsteypt, vönduð og alveg þess virði að eyða tímanum í að hlusta á. ég mæli kannski ekki með henni fyrir alla en þeir sem hlustuðu á gus gus og eru nýjungagjarnir á tónlist ættu ekki að verða vonsviknir með þetta verk daníels
----
til að vega upp á móti þungri plötu þá ætla ég að koma með smá léttmeti en það er hljómsveitin people in planes. band þetta er frá cardiff í wales en þeir spila poppaða indie tónlist, alls ekkert sem ekki hefur heyrst áður, engar stórvægilegar nýjungar en þó ekkert sérstaklega mainstream heldur. það sem varð til þess að þessi hljómsveit fékk smá vott af umfjöllun er að leikarinn joaquin phoenix er mikill aðdáandi hljómsveitarinnar og leikstýrði hann myndbandi þeirra við lagið "if you talk too much (my head will explode)". ekki láta diddú-lega byrjun lagsins hrella ykkur
people in planes - if you talk too much (my head will explode)
skrifað af criticts 19:42 criticts