vegna áhugaverðs nafns og undalegrar ástæðu fyrir tilveru sinni ákvað ég að gá hvernig hljómsveitin ninja high school myndi spjara sig í tækinu hjá mér. hljómsveitin varð til vegna þeirrar ástæðu að einn maður var orðinn þreyttur á að hlusta á lagið butterfly með crazytown eða eins og hann sagði:"this sucks! i can do better than this!" upp úr því varð til ninja high school.ég efast ekki um að hver sem er geti gert skárri tónsmíðar en óbjóðsbandið crazy town en ninja high school fer ekki mikið hærra en það. hljómsveit sem segir sig vera:"a positive hardcore dance-rap band" getur varla náð háum hæðum þó auðvelt sé að fá lög þeirra á heilann,"positive laser set it on!" en dæmi hver fyrir sig. þess má geta að hljómsveitin fékk falleinkunn hjá benna, hip hop/rap sérfræðingin criticts
ninja high school - positive laser
eftir ófagra en þó ekki allskostar ónýta reynslu af ninja high school ákvað ég að gefast ekki upp á ninja hljómsveitunum og næst á dagskrá var sænskættaða hljómsveitin loveninjas sem mætti lýsa sem: the killers meet the strokes meet modest mouse. hugljúfar og mótækilegar melódíur ásamt því að sungið er á ensku (fyrir þá sem fóru flatt á dungen).
verð ég að segja að loveninjas ber sigur úr bítum hvað betri ninja hljómsveitina varðar og þó ég viti lítið um hljómsveitina eins og er að þá er ég viss um að hún á eftir að gera fínustu hluti í íslensku útvarpi í náinni framtíð, mark my words.
loveninjas - meet me here
loveninjas - keep your love
skrifað af criticts 18:08 criticts