fyrir þá sem ekki vissu að í gærkvöldi þá var oddvitinn the place to be. fólk gat sagt sér það sjálft að þegar hermigervill og trabant koma saman á einum stað með músíkgræjur sínar að þá verður tjúttað.svo ég vindi mér beint í flytjendurna tvo, sleppi dj málum sem voru fyrir og eftir tónleika, þá var það hermigervill sem byrjaði. hann spilaði semfellda músík án þess að stoppa milli laga og kom þessi suðupottur mjög vel út, nýjar útgáfur laganna litu dagsins ljós í sambland við nýtt efni og spuna. maðurinn gerði sér svo lítið fyrir og reif sig úr þeim fötum sem hann hafði staðið í og kom þá í ljós glans rauður palliettu galli sem glansaði og glampaði á meðan hann spilaði tónlist sína, frumleg og flott framkoma. hann var í góðum gír og fyrir mér var hermigervill hápunktur kvöldsins.
á eftir hermigervil mættu trabant, sumir i leðurbuxum, aðrir í stuttbuxum og seint meir var fátt um föt en allan tíman voru þeir út úr smekkaðir af glimmeri sem smitaðist út í áhorfendaskarann. þeir tóku öll sín frægustu lög sem var mjög skemmtilegt og fólk kunni vel að meta glansið og glamorið þar sem dansgólfið var stútað af fólki í viltum transi.
mér til mikillar undrunar lagði einhver hendurnar sínar á axlirnar á mér og hoppaði ótt og títt, í forvitni minni leit ég við og var það þá ekki hermigervill sjálfur sem hamaðist á bakinu á mér og hafði svo sannarlega ekki sagt sitt síðasta orð þetta kvöldið þar sem hann fór hamförum á dansgólfinu allan tíman meðan trabant spilaði, krýni ég hann svalasta tónlistarmann íslands.
góðir tónleikar og árið 2006 byrjar skemmtilega hvað tónlist og tónleika varðar, gæðastympill criticts á þessa tónleika, ekki spurning.
skrifað af criticts 18:32 criticts