ég veit ekki hvort þið tókuð eftir hljómsveitinni hairdoctor í kastljósinu núna fyrr í kvöld, en þar er á ferð tveir hárgreiðslumenn sem kalla sig hairdoctor, voru að gefa út plötuna shampoo og dreifa sjampói í bréfum þegar þeir spila á tónleikum. settið þeirra var einkar áhugavert í kastljósinu, annar þeirra spilar á gítar með hárkollu hangandi á enda hans og söng í hljóðnema sem fastur var í hárþurku. hinn masteraði tölvumál og synth ásamt því að vera með hárkollu á standi rétt hjá sér. getið séð þetta á http://ruv.is undir sjónvarp, finnið þetta alveg sjálf.ég er allavegana búinn að vera að leita að þessum disk nokkuð lengi án árangurs þannig að ef þið eigið hann eða þekkið einhvern sem á hann að þá væri ég meira en reiðubúinn í að fá þann disk lánaðann. hárgreiðslumenn sem semja tónlist.. hvernig getur það klikkað?
hairdoctor - major label
ég vil líka benda á, þó seint er, jólalagatal xfm þar sem samið var eitt lag fyrir hvern dag. má þarna finna skemmtilegt safn laga sem gott er að eiga fyrir næstu jól.
http://hairdoctormusic.com/jola.htm
síðast en ekki síst getið þið kíkt á heimasíðu sommerfuglerne sem er ótrúlega óaktív en það á allt eftir að breytast get ég lofað ykkur. just wait for it
http://sommerfuglerne.blogspot.com
skrifað af criticts 01:50 criticts