tilraunakennda elektróníska/hip hop hljómsveitin unkle frá london vakti athygli mína fyrir þó nokkuð löngum tíma en ég hafði steingleymt tilvist hennar þar til ég rakst á grein um hana nú fyrir stuttu. hljómsveitin samanstendur af þremenningum sem búa til hip hop sömpl og takta af stakri snilld og fá svo til sín þekkta og óþekkta listamenn til að koma fram í sumum lögum þeirra, t.d. mike d, thom yorke í laginu rabbit in your headlights, ásamt ýmsum öðrum. að mínu mati er diskurinn psyence fiction þeirra lang besti diskur þar sem trip hop taktar þeirra mæta allskyns tónlistarstefnum svo úr verður fínasta skemmtun.allir ættu að geta fundið a.m.k. eitt lag með unkle sem höfðar til þeirra svo það er bara að fara út að leita.
unkle - unkle main title theme
unkle - rabbit in your headlights
skrifað af criticts 20:25 criticts