benedikt
nafn þetta er tekið úr latinu, samsvarar latneska orðinu "benedictus" sem þýðir blessaður.
birkir
nafn þetta að öllum líkindum leitt af kvennafninu björk.
bjarni
nafn þetta er veik beygingarmynd af nafninu björn.
friðgeir
nafn þetta er myndað af forliðnum "frið" sem merkir friður, - ró, - næði og viðliðnum "geir" sem merkir spjót.
heiða
nafn þetta er stytting á nöfnum sem enda á "-heiður" og merkir björt, - skær.
jónas
nafn þetta er komið úr biblíunni af hebreska nafninu "yonah" sem merkir dúfa.
róbert
nafn þetta er tökunafn úr þýsku þar sem það er sett saman af nafnorðinu "hröth" sem merkir hróður, - frægð og lýsingarorðinu "beraht" sem merkir bjartur, - skínandi.
tryggvi
nafn þetta er leitt af lýsingarorðinu "tryggur" sem merkir trúr, - traustur.
þorvaldur
nafn þetta er samsett af forliðnum "þór" í merkingunni þrumuguðinn þór úr norrænni goðafræði, og viðliðnum "valdur" sem merkir hefur vald á, - ræður yfir.
örvar
nafn þetta er líklega myndað af forliðnum "ör" í merkingunni hermaður og viðliðnum "var" sem merkir gætinn, - varkár.
skrifað af criticts 18:44
criticts