að þessu sinni tek ég fyrir íslensku hljómsveitin dikta sem skipuð er fjórum einstaklega hæfileikaríkum mönnum og var sveitin nýlega að gefa út diskinn hunting for happiness. ace, gítarleikari bresku sveitarinnar skunk anansie stjórnaði upptökum á plötunni sem gerir það að verkum að platan verður fágaðri og betri hvað gæði tónlistarinnar varðar. þessi seinni plata diktu er mjög frábrugðin hinni fyrri, andartak, sem var hrá unglingarokkplata ef svo að orðum mætti komast.á hunting for happiness er öllu umturnað, fullsköpuð, þroskuð hljómsveit lætur til sín taka og sem dæmi má nefna kemur fyrsta lag plötunnar "losing every day" sterklega til greina sem eitt besta lag ársins 2005. haukur heiðar, söngvari og gítarleikari hljómsveitarinnar getur jafnt sungið mjúklega, fallega sem og ákveðið og kröftuglega svo maður heyrir jafnt róleg og hugljúf lög í bland við snögg-poppuð rokklög. öll lögin hljóma vel og fanga mann allan, varla hægt að finna nokkurn galla í útsetningum, hljómi, lagasmíðum eða öðru sem við kemur disknum. diskurinn á fullt erindi inn á erlendann plötumarkað þar sem hann er engu síðri en það sem vinsælast er erlendis þessa dagana, enda var snjallt hjá dikta mönnum að fá til liðs við sig reyndan upptökustjóra. topp gripur
ekki má svo gleyma að dj rassgat, vel þekktur dj í kofa tómasar frænda vildi láta bendla við sig sem vin og meðspilara í þessari hljómsveit. rassgatið rokkar
dikta - losing every day
síðan er planið að koma með lista yfir 9 bestu/mest hlustuðustu plöturnar sem ég komst í kynni við árið 2005, auk þess sem áhugaverðast var í tónlistarlífinu á þessu ári.
skrifað af criticts 02:45 criticts