nú flytjum við okkur frá kanada en skiljum þó ekki alveg við það. varð nú á vegi mínum hljómsveitin boards of canada frá skotlandi sem spilar afslappaða raftónlist en þó á köflum lög með hröðu tempói. þetta er ótrúlega þægileg bakgrunnstónlist t.d. við lærdóm eða þegar maður er að reyna að sofna. orð sem fá lýst tónlistinni gætu verið á þessa leið: mild, draumkennd, fínleg, slóttug, afslappandi, dáleiðandi, drungaleg, undirgefin, dapurleg, sefandi, fáguð, fjarlæg og einkennileg. ég mæli eindregið með að fólk prófi að hlusta á nýja hluti, eitthvað sem það hefur aldrei heyrt áður og veit ekkert um, þá sérstaklega ef það hlustar alltaf á sömu hlutina og er farið að klæja í fingurnar á að heyra eitthvað nýtt.boards of canada er trommu, synth/hljómborðs tónlist sem allir ættu að getað hlustað á án þess að verkja í eyrun að einhverju viti.
boards of canada - roygbiv
boards of canada - an eagle in your mind
skrifað af criticts 15:50 criticts