xiu xiu

xiu xiu, ég skal lofa því að lögin sem þessi hljómsveit gerir eru betri en nafnið á henni. hljómsveitin samanstendur af fjórum meðlimum sem spila rafkennda tónlist í bland við háttstemmda synth takta og tilraunakennt rokk. hljómsveitin hefur gefið út fjóra diska en sá diskur sem ég er að einbeita mér að er diskurinn fabulous muscles sem gefinn var út árið 2004. er þessi diskur ótrúlega fjölbreyttur og heldur manni vel við efnið þar sem maður er annað hvort hugtekinn af tónlistinni eða sjokkeraður af framhleypni og tilraunasemi hljómsveitameðlima. þess má geta að þessi diskur var valinn diskur ársins 2004 í þáttunum karate og chronic á meðan þeir voru í fullu fjöri á x-inu. diskurinn er þungur á alla vegu, bæði þungur í hlustun og boðskapur hans er einkar þunglyndislegur þegar spáð er í því enda tel ég ekki að þessi diskur sé fyrir fólk með mjög þröngt tónlistarsvið. þetta er mjög tilraunakenndur diskur eins og ég hef nefnt áður og það er alltaf gaman að hlusta á eitthvað sem maður hefur ekki heyrt áður.
crank heart - xiu xiu
skrifað af criticts
23:27
criticts