hljómsveit dagsins er einkar skondin en er það hljómsveitin twink. ég er mikill áhugamaður um hljómborð og finnst gaman að fikta í þannig græjum, á ég eitt lítið hljómborð sem gengur fyrir batteríum og annað blásturshljómborð ásamt því að vera með í láni full size hljómborð. hélt ég að ég ætti ágætt safn hljómborða en það er ekki neitt samanborið við það sem twink á. hljómsveitin á sennilega stærsta safn leikfangahljómborða sem hægt er að finna, virkilega stórt safn. er notast við þessi hljómborð ásamt öðrum hljóðfærum í lögunum en þar sem þetta eru leikfangahljómborð að þá eiga lögin nokkuð til að hallast út á barnalegu hliðina en þó er hægt að finna hreint út sagt mögnuð lög með þeim. broken record er nýjasti diskur hljómsveitarinnar og hef ég heyrt nokkur lög af honum en ég verð að segja að það sem ég hef heyrt af eldri diskunum er ég að fíla betur.svo hér má finna hljómsveit sem spilar ljúfar laglínur á leikfangahljómborð í bland við breakbeat sömpl. mætti segja að þetta sé fremur mikil flipp hljómsveit en það er einstakt að einhver taki sig til og semji tónlist á svona hljóðfæri.
asleep in a snake basket - twink
hoppity jones - twink
catnip - twink
skrifað af criticts 23:47 criticts