að sjálfsögðu er criticts fréttavaktin með puttann á púlsinum hvað varðar fréttir í heimsmálum. það sem helst er í fréttum þennan þriðjudag er að:
írönskum fótboltamönnum hefur verið bannað að hafa "nútímalegar og framandi" hárgreiðslur þar sem þeir eru sagðir hafa slæm áhfrif á landa sína með þess konar útliti.
bresk dagblöð ganga berserksgangi þessa dagana og eru farin að láta fylgja fríar dvd myndir með blöðunum sínum. byrjaði þetta fyrst með því að það kom dvd mynd aðeins með sunnudagsblaðinu en þróun mála hefur orðið til þess að nú fylgir dvd mynd daglega hjá sumum blöðum, hvort sem um er að ræða teiknimyndir, bíómyndir eða breska þætti. þætti mér gaman ef íslensk dagblöð tækju upp á þessu.
og af íslandi er það að frétta að nú geta akureyringar fengið um 60 sjónvarpsrásir í gegnum kerfi símans. á fólk að geta panntað sér bíómyndir og allskyns þægindi í gegnum þessa þjónustu og á þetta að auðvelda öllum akureyringum sjónvarpsáhorf til munar. hvernig væri þá að leggja kapal í öll hús á akureyri, svo allir geti fengið þetta, áður en þið farið að auglýsa einhverja svona þjónustu?! þoli ekki símann
þar með lýkur fréttum frá fréttastofu criticts.. allt um allt og alla
skrifað af criticts 18:10
criticts