nú var nokkuð um rafmagnsleysi í reykjavík en þó mætti segja að það hafi hagnast okkur akureyringum. eftir að rafmagnið fór af hluta reykjavíkurborgar í dag þá hrundi niður afruglurakerfi 365 ljósvakamiðla, stöð2 og sýn hafa þar með verið óruglaðar í dag. þannig að mín vegna má reykjavík vera rafmagnslaus af og til.
öfugmælavísur:
í eld er best að ausa snjó,
eykst hans log við þetta;
gott er að hafa gler í skó,
þá gengið er í kletta.
gott er að láta salt í sár
og seila fisk með grjóti,
best er að róa einni ár
í ofsaveðri á móti.
skrifað af criticts 21:27
criticts