það kannast allir við klapp. það hafa allir einhvertíman klappað og þá sennilega á viðeigandi tíma. í lagi er að klappa þegar fótboltalið skorar mark, einhver er að gifta sig eða einhver útskrifast úr skóla. þetta eru allt viðeigandi tímar til þess að klappa ásamt mörgum öðrum.
en nú vil ég benda á þá tíma þar sem fólk þarf ekki að klappa á. það er t.d. þegar flugvél lendir að bíómynd í bíóhúsi klárast. verð ég að segja að þegar ég lendi í því þannig pakka að þá fæ ég alltaf aumingjahroll.
vildi ég bara benda á þetta svo einhverjir brenni sig ekki á þessu. hugsið áður en þið klappið
skrifað af criticts 00:47
criticts