þegar hitinn úti er orðinn 25 gráður og einnig glampa sólskin að þá er gamall citroen ekki bíll sem þú vilt vera í. ég varð einmitt vitni af því í dag að maður á gömlum citroen var að keyra þegar það kviknaði allt í einu í bílnum hans. eftir svona 3 mín var allur bíllinn í ljósum logum og svartur strókur lá úr honum. slökkvuliðið og lögreglan mættu auðvitað á staðinn og sinntu sínum skyldum, þó það virðist sem slökkvuliðsmenn sjái ekkert með þessar grímur sínar.. tóku ekkert eftir því að það var alltaf eldur undir bílnum. á endanum var eldurinn allur slokknaður og þá tók einn slökkvuliðsmaðurinn sig til og öskraði:"ÞAÐ ER BENSÍN LEKI SEM VIÐ ÞURFUM AÐ STÖÐVA! VILJIÐI FÆRA YKKYR FRÁ BÍLNUM!" .. mjög bíómyndalegt allt og er ég nokkuð viss um að þessi tiltekni maður hefur verið að bíða eftir því að geta sagt eitthvað þessu líkt alveg frá því að hann byrjaði að vinna sem slökkvuliðsmaður, hann var allavega mjög spenntur.
maðurinn í bílnum slapp ómeiddur og náði öllu úr bílnum, bíllinn sprakk ekki eins og gerist alltaf í bíómyndunum.. þar þarf ekki meira til en að það kvikni í einu dekki, þá springur bíllinn og allt sem er í 100m radíus við hann. alltaf lærir maður eitthvað nýtt
skrifað af criticts 20:15
criticts