eins og flest allir ættu að vita að þá urðu hræðilegar hriðjuverkaárásir á london nú í morgun, en ég er þó ekki að fara að skrifa skoðanir mínar á þeim þar sem þær eru of pólitískar og sjokkerandi.
hins vegar ætla ég að færa ykkur fréttir af aðal fréttaefni criticts.tk síðustu mánuði en er það fréttin um piano man. fátt er enn vitað um þennan mann en þó telja nú læknar að þeir viti hvaðan maðurinn er. talið er að maðurinn komi frá noregi og fengu þeir það út með því að rétta manninum landakort og hann bennti á osló. einnig er sagt að hann bregðist betur við norskunni en enskunni þó að hann hafi enn ekki sagt orð. gæti það þó bara stafað af því að norskan er svo syngjandi mál og þessi maður er svo tónelskur.
ekki veit ég hvort hægt sé að fullyrða að maðurinn komi frá noregi en miklar rannsóknir standa yfir í sambandi við piano man og verður auðvitað allt sem fréttist birt hér.
skrifað af criticts 19:49
criticts