nú upp á síðkastið hefur verið að koma út mikið af nýjum plötum frá hinum og þessum hljómsveitum og ef fólk er í einhverjum vandræðum um hvað það á að hlusta á að þá ætla ég að benda ykkur á nokkrar plötur sem criticts.tk mælir sterklega með.
daft punk - human after all
death from above 1979 - you're a woman, i'm a machine
kasabian - kasabian
helgi valur - demise of faith
bloc party - silent alarm
coldplay - x&y
gorillaz - demon days
emiliana torrini - fishermans woman
elliot smith - from a basement on the hill
eru þetta allt úrvals plötur sem vert er að kíkja á. ég sem dæmi var ekki að ná upp í hvað fólki fannst nýji coldplay diskurinn góður en eftir að hafa hlustað nokkrum sinnum á hann að þá er hann orðinn skrambi góður. eru sumar af þessum plötum þannig að þær verða betri og betri eftir því sem maður hlustar oftar á þær.
einnig er vitað að depeche mode og radiohead eru að vinna að gerð nýrra platna og verður spennandi að fyrlgjast með því. búið er að negla niður dagsetningar á útgáfutónleikum depeche mode víðs vegar um heiminn svo ef einhver er til í að koma með mér til london að sjá depeche mode á wembley þann 3. apríl 2006 að þá hefur sá hinn sami bara samband.
einnig ef þið vitið um einhverjar góðar plötur sem komu nýlega út að þá bara endilega láta vita, það hefur aldrei drepið neinn
skrifað af criticts 22:21
criticts