laugardagur, júní 18, 2005
blistex

í gær var sautjándi júní og var þá mikið um pomp og prakt í bænum. var ekki mikið þar sem vakti athygli mína en þó var ein hlómsveit sem ég var spenntur fyrir að sjá og var það stórhlómsveitin moop. var mér tjáð að þeir ættu að spila kl 11 um kvöldið en svo breyttist það eitthvað þannig að þeir spiluðu mun mikið fyrr sem varð til þess að ég misst af þeim.
annað var bara ágætt fyrir utan tvo hræðilega stráka í nætursölunni. bið ég til guðs að ég sjái þá ekki aftur.

eins og allir vita að þá er allt sem er breskt best. fótbolti, bíómyndir, tónlist og svo mætti lengi telja. sem dæmi um hvað bresk tónlist er mögnuð að þá má nefna hljómsveitirnar bloc party, og þær nýjustu, kasabian og death from above 1979. eru þetta allt bönd sem eiga eftir að skjótast upp á stjörnuhimininn innan skamms, enginn vafi um það. eru allar þessar hljómsveitir nýbúnar að gefa út frumraunir sínar og það sem ég hef heyrt er allt eðal efni.

einnig ætti fólk að hlusta eins og það getur á þættina popppland sem eru frá 12:30 til 4 alla virka daga á rás 2. eru það þeir snorri sturluson og freyr bjarnason sem leiða þann þátt af stakri snilld, spila góða, nýja og framsækna tónlist í bland við gamla smelli sem enginn hefur gleymt. voru það einmitt þeir sem vöktu áhuga minn á hljómsveitinni kasabian. ég veit að nafnið poppland er kannski ekki svo aðlaðandi en þetta er alls enginn popp þáttur að mínu mati, þarna eru ekki spiluð lög með írafár og ber út allann þáttinn heldur er mikið um góða tónlist, létt spjall, tónlistargetraunir og almenna skemmtun.

nýja batman myndin er bara nokkuð mögnuð fyrir utan batman bílinn, hann er enginn eðall. ég er ekki að digga hlussu hömmer með allri brynvörninni og 50" dekkjum. það eina sem má setja útá þessa svo annars góðu mynd er bíllinn og það að batman þemað var aldrei spilað í mydinni. christian bale er magnaður batman, katie holmes er ekkert spes en val kilmer verður ávalt besti batmaninn og batman forever (mynd nr. 3) lang besta myndin.

ekkert nýtt að frétta af piano man en þar sem ég er í beinum tengslum við fréttastofu bbc að þá kemur allt á criticts um leið og fréttirnar berast.


skrifað af criticts 13:29 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3