fór á ýdali sem var bara hin ágætasta skemmtun, fólk var að slasa sig í frisbee fáandi skurða og læti. lagt var af stað með 3 einnota myndavélar og tel ég þær allar vera fullar, veit allavega að mín er það. svo að það sést kannski eitthvað af þeim myndum hér eða á myndasíðunni, það veltur bara allt á útkomu myndanna.
ekki fyrir svo löngu horfði ég og heiða á mynd sem ber nafnið killer klowns from outer space. er þessi mynd frá árinu 1988 og skartar hún frægum leikurum á borð við grant cramer og suzanne snyder.. það kom mér þó reyndar nokkuð á óvart að christopher titus lék í myndinni, tók ekkert eftir því þegar ég horfði á hana.

svo við snúum okkur nú að því um hvað þessi mynd er að þá fjallar hún um creepy/klikkaða trúða sem koma úr geimnum og byrja að drepa fólk af ástæðulausu. þeir nota frumleg trúðavopn á borð við kandíflos, poppbyssur, sýrutertur og skuggamyndir til að verða fólkinu að bana. snýst myndin svo bara basicly um það að þessir trúðar eru að myrða alla í þessum bæ á meðan sérvalinn flokkur fólks sem rekst á þá fyrst reynir að komast að því hvernig megi útrýma þessum trúðum.

það má þó segja að það sem einkenndi þessa mynd var hræðileg frammistaða leikaranna fyrir utan þá sem léku trúðana, þeir stóðu sig frábærlega, má segja að þessi mynd hafi verið svo léleg að hún varð fyndin. það var þó eitt sem stóð mjög mikið upp úr og var það tónlistin í myndinni. hún var tær snilld og verða eiginlega allir að heyra theme lagið í myndinni. því hef ég sett það á netið svo þið getið sótt það "hér". annars var þetta mjög góð skemmtun og hvet ég eindregið alla til að fara og ná sér í eintak af myndinni killer klowns from outer space og horfa á hana. ætla ég að gefa henni 7 stjörnur af tíu mögugulegum.
skrifað af criticts 19:21 criticts