mánudagur, maí 16, 2005
piano man

í bretlandi er nú einn maður umtalaður þar sem saga hans er mjög undarleg. þessi maður fannst í kent á bretlandi, hundblautur og illa haldinn. var hann klæddur fötum sem búið var að rífa alla miða af, svo ekki veit maður hvort fötin eru frá dressman eða joe´s. ekki að það skipti öllu máli heldur telst það óskup undarlegt að búið sé að rífa alla miðana af.

maður þessi hefur ekki mælt eitt orð frá því að hann fannst 7. april, en þegar honum var rétt blað og blýantur í von um að hann myndi skrifa nafn sitt teiknaði hann í stað mjög nákvæma mynd af flygli, hér fyrir neðan. fór starfsfólk sjúkrahússins sem hann dvelur á með hann í kapellu sjúkrahússins þar sem var píanó. hresstist maðurinn allur við þegar hann sá píanóið, settist við það og byrjaði að spila af mikilli list og er hann sagður með hæfileika á heimsmælikvarða.



það ótrúlega er að enginn veit hver maðurinn er og hefur ekkert gengið við að finna út hvað hann heitir, hvaðan hann kemur eða hvað gerðist fyrir hann.



maðurinn hefur því fengið nafnið piano man eða píanó maðurinn. verð ég að segja að þetta er ekki ólíkt því sem gerst hefur í ýmsum bíómyndum og þáttum, ætli við séum hér að horfa uppá einhvern sem er ekki frá jörðinni? það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu þessa máls og getið þið treyst á það að þetta verði allt hér á criticts.tk


skrifað af criticts 19:44 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3