í gær skellti ég mér með heiðu á græna hattinn þar sem við fórum að sjá mugison. hann bryjaði á lagi þar sem hann fiktaði í tölvudótinu sem hann var með, sumt í því var fínt en annað minnti á acid foundry stórslys. eftir það sagði hann fróðlega kúkasögu um það hvernig hann skeit á sig eitt skiptið á tónleikum þar sem hann var veikur. síðan spilaði hann ýmis lög með mikilli snilld og í lagin 2 birds notaði hann skjávarpa til að varpa mynd af konunni sinni á gítarinn sinn þar sem hún gat ekki sungið með honum, það var nokkuð flott.
einnig í einu laginu tók hann upp hljóð frá áhorfendum og notaði þau í laginu see y sem að ég var mikið búinn að vona að hann myndi taka en það er af disknum lonely mountain.
svo voru ýmsar skemmtilegar uppákomur og voru þetta mjög skemmtilegir tónleikar, get mælt með því við alla að kíkja á tónleika með mugison.
svo ég víki nú að öðru máli að þá datt ég aftur inn á leik sem ég hafði spilað mikið á fyrsta ári í ma. er þetta auðvitað leikurinn striker of the month sem finna mér á slóðinni http://www.playforyourclub.com/play20.php og hvet ég alla til að prófa þennan leik þar sem þetta er eðal leikur.
skrifað af criticts 23:31
criticts