mynd þessi fjallar um íslenska tónlnist fyrr og nú og má með sanni segja að þeir sem að þessari mynd stóðu stóðu sig feikilega vel. myndin gargandi snilld kemur inn á allt gott sem verið er að gera í íslenskri tónlist í dag ásamt myndum af íslensku landslagi þar sem framsetning þess er stórkostleg. það frábæra var að mér líkaði vel við nánast allar hljómsveitirnar sem í myndinni voru, má kannski segja að ég sé ekki beint að digga ghostdigital en það var fróðlegt að sjá hana. í myndinni komu fram listamenn á borð við björk, sigur rós, steindór andersen, bang gang, mugison, mínus, slow blow, múm, quarashi, trabant, apparat organquartet, nilfisk og margir aðrir. mikið var sýnt með björk ásamt viðtölum við hana sem að er kannski skiljanlegt þar sem hún er vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn. einnig sannaði barði í bang gang endanlega að hann er ofur svalur náungi þar sem hann sagði í viðtali að íslenskir tónlistarmenn væru ekkert lélegir en íslensk tónlist væri ömurleg. rök hans fyrir því voru að það væri svo lítið fjármagn til eyðslu í íslenska tónlist og að það þyrfti að gera hana í svo miklum æsingi sem er að miklu leiti rétt.
þetta var ótrúleg upplifun að fylgjast með tónlistarfólkinu og fá að sjá tónlistina frá þeirra sjónarhóli. mæli ég eindregið með því að allir sem hafa unun á tónlist að fara og kíkja á þessa mynd, hver veit nema þeir gætu heyrt og séð eitthvað nýtt sem þeim gæti líkað. er viturlegt að fara á myndina í bíó þar sem maður fær þá tónlistina beint í æð úr hátalarakerfi bíósalsins en einnig er það þó vel þess virði að leigja hana á video þegar hún kemur og ætla ég það að gera.
ég gef þessari mynd hiklaust 10 af tíu mögulegum og er þetta að ég tel það fyrsta sem fær topp einkunn á criticts.tk ,eftir að ný einkunnagjöf var tekin upp, enda á hún það svo sannarlega skilið.
gargandi snilld: **********
skrifað af criticts 00:38 criticts