þar sem ég og raggi eigum það oft til að kíkja upp í hrísarlund í matarhléum, fá okkur að borða og lesa dagblöð að þá fór ég að spá í hvaða blað það nú væri sem að fólk hefði mest gaman að lesa. ég held að ég verði að segja að ég reyni oftast að lesa dv, það stafar sennilega af því að ég les það svo sjaldan og útaf því að það er svo mikið af rugli í þessu blaði sem gaman er að lesa. trúverðuleiki blaðsins er kannski svona 5% en skemmtanagildi er mun hærra. svo ég kýs dv fyrir skemmtun, moggann fyrir fréttir og fréttablaðið þegar ég þarf að lesa eitthvað í skyndi. en hvað segið þið, hvaða blað er að ykkar mati besta lesningin?
skrifað af criticts 23:00
criticts