ekkert að frétta. ég er búinn að vera veikur síðan á föstudaginn með góðann 38.5° hita. ég horfði á tvær fanta fínar myndir í gær, white chicks og catch me if you can. white chicks var óskup tilgerðarleg og maður fékk stundum aumingjahroll þegar maður var að horfa á hana en þegar maður er með hita og ekki alveg viss hvað er að gerast að þá truflar það mann ekkert. held að white chicks fái 7 stjörnur af 10 mögulegum.
catch me if you can fór fram úr öllum mínum væntingum. ég var búinn að vera með mikinn móral í garð þessarar myndar þó ég væri ekki búinn að sjá hana, sagði öðrum að hún væri ömuleg og svona. svo fór fólk sem hafði séð myndina að hella sér yfir mig og segja mér að þetta væri frábær mynd og allt þar á milli svo að ég ákvað að taka hana til að afsanna það allt. þetta reyndist bara vera hin besta skemmtun og ótrúlegt hvað einn gaur getur gert. þar sem þetta er sannsöguleg mynd að þá held ég nú að eitthvað hafi verið örlítið ýkt þarna en samt var þetta bara frábær mynd. hún fær án nokkurs vafa 9 stjörnur af tíu og mæli ég vilt og galið með því að þeir sem ekki hafi séð þessa mynd skapi sér tíma til þess að sjá hana.
ljótt er það þegar foreldrar mínir halda 20-30 manna veislu hérna heima. ég faldi mig í einu herbergi með ipod og nintendo en þrátt fyrir að svo einangraður að þá komst ég ekki hjá því að heyra alla frammi vera að tala dönsku eins og einhverjir vitleysingjar, syngja svo danska lagið. hreint helvíti skal ég segja ykkur
skrifað af criticts 20:03
criticts