þá er menningarferð lokið og ætla ég að koma með smá yfirferð á henni.
lagt var af stað frá ma kl eitt að staðartíma og fórum við með abuse.is rútum. í hvert skipti sem að ég hef ferðast með abuse rútum í ma ferðum að þá hafa þær alltaf bilað á leiðinni svo að mér leist ekkert á þetta. greip ég því tækifærið og stofnaði veðbanka áður en við lögðum afstað sem var þess efnis að menn áttu að veðja hvar á leiðinni rútan myndi bila. skemmst að segja frá því að rútuferðin var fín og hún bilaði ekkert svo enginn vann.
svo komum við í ms og fundum okkur herbergi. í herberginu voru gaurarnir í fm krúinu, birkir sem var titlaður róninn vegna þess að hann kom ekki með neitt með sér nema teppi og kodda. svo voru þarna óttar, valgerður, thea, anna, kristrún og ástrós.
svo um kvöldið var valið um að fara í idol "party" eða keilu. vorum búnir að ákveða að fara í þetta idol dæmi en svo fréttum við að þetta væri haldið í bláa salnum í versló og það ætti bara að sitja og horfa á idol, sem hljómaði mjög súrt. þannig að við ákváðum að fara í keilu. var ég á braut með óla, aroni, sigga, birki og báru. við fengum geðveikt crappy braut sem var svo slow að hún minnti á blindan fisk. þannig að keilan var frekar slöpp.
svo eftir keilunni var farið að rúnta með örvari (ö). það var sleipt, við skutluðum ragga, óla og sigga í skottið á honda accord þannig að þeir voru í kremju og svo vorum við að skemmta okkur við að aka yfir hraðahindranir á mikilli ferð og njóta þess að heyra þá öskra. þetta var víst allt mjög kósí hjá þeim þar til hann sigurður rak við. þá var þetta víst ekki jafn kósí. en svo fórum við á laugarveginn og á stað sem hét ariíögri eða eitthvað álíka jafn flott. ég labbaði þrisvar inná þennan stað og þrisvar út þar sem það var eitthvað massa bras á strákunum og er ég nokkuð viss um að þessi dyravörður hafi haldið að ég væri fífl. svo fór ég á nelly´s og sá þar 2 gaura vera með laptop á barnum að horfa á barnum. fór ég í skemmtilega spilakassa þarna en vann ekki neitt og fór því út. svo var aftur farið að rúnta með ö og endaði það ekki vel. lenntum í örlitlu óhappi með honduna sem varð þess varðandi að það þurfti að skrifa skýrslu í klukkutíma og það var frekar dauft. þó heyrðust skemmtilegir frasar á borð við "pabbi hjá hvaða tryggingarfélagi er bíllinn" og margt annað. þetta var bara had to be there moment.
svo á laugardagsmorguninn var farið í sund. þar tókum við okkur til og fórum í körfubolta í laugardagslöginni. það var alveg brillíant, ég og kristrún tókumst mikið á og var rifið, tosað og drekkt. erum við búin að ákveða að útkljá málin með slag eftir skóla einhvern daginn. svo í karlaklefanum var fyrsta undratækið sem við fundum í reykjavík. það var svona græja sem maður skellti sundfötunum sínum í og þrýsti svo loki niður og þá þurkuðust fötin manns á sirka fimm sec. það var var massívt og fær þessi vél bókað 9 stjörnur af tíu mögulegum.
eftir sundið var farið í kringluna. þurftum við að hanga í kringluni í fjóra tíma sem var frekar súrt. menn brugðu á það ráð að taka strætó heim eða bara labba. ég og aron nenntum því þó ekki og fundum hurð sem leiddi inn í kringlubíó og vorum við svo heppnir að það var ákkúrat hlé. var valið þá á milli bangsímon eða coach carter. völdum við þá síðari en það voru nú meiri mistökin. þetta var alveg hreint skelfileg mynd og veit ég ekki hvað samuel j. var að spá. síðari hluti coach carter fær ekki nema 2 stjörnur af 10 mögulegum.
svo komum við í ms og vorum eitthvað að hanga þar og fórum meirað segja í leik þar sem var teiknað skotskífu á töfluna og svo notuðum við juggling boltana sem jómbi keypti sér til að kasta. skemmst að segja að þá vann ég þessa keppni með miklum stæl og var enginn sem átti roð í mig. valgerður lennti í öðru sæti, raggi í 3. sæti og svo var það thea sem lennti í fjórða sæti.
eftir að hafa tekið því rólega í ms í örlitla stund lá leiðn á hróa hött þar sem átti að borða. lenntum við strákarnir á sucky borðum alveg við útganginn þar sem allir löbbuðu inn og út og var það þess valdandi að okkur var ískalt. pizzurnar voru ekkert spes og frostið var óbærilegt svo að hrói hötttur fær núll stjörnur og er þar með það fyrsta sem ég gef ekki neina stjörnu.
svo fór ég með jómba og aroni á múlan rús í fg á meðan restin af krúinu fór til frænku örvars að drekka. átti ég lítið áfengi og var ekki beint í stuði til að drekka svo að ég skellti mér bara í leikhús sem var innifalið í verðinu, annars ekki viss um að ég hefði farið. en þetta var hreint og beint alveg magnað leikrit. massa flott ljósashow og gott hátalakerfi skemmdi ekki fyrir og fær þessi sýning átta stjörnur af tíu mögulegum. væri ekki heimskulegt hjá fólki sem á leið hjá fg að skella sér á þessa sýningu. en í fg sá ég undratæki númer tvö. var ég á klósettinu í mestu makindum og var að leita mér að bréfi til að þvo mér um hendurnar og sé ég þá hvar bréfið var í bláum kassa og ætlaði ég að teygja mér í bréfið, fór þá fyrir einhvern leysigeisla þannig að það kom bréf automatiskt útúr þessu. reif ég svo bréfið út og setti hendina aftur fyrir og þá kom aftur bréf. fannst mér þetta alveg hreint frábært og kláraði ég allt bréfið í tækinu. fann ég svo annað klósett sem var hliðiná og deildi þessari mögnuðu uppgötvun minni með hinu fólkinu sem var þarna. nokkuð viss um að þau voru jafn mikið í skýjunum yfir þessu og ég.
eftir leikhúsið var planið að fara í bíó á hide and seek, en þar sem leikhúsið drógst á langinn að þá misstum við af myndinni og ákveðið var að skella sér bara aftur í keilu í stað þess að fara uppí ms og gera ekki neitt. var miklu skemmtilegra í þetta skipti og var ég bara nokkuð góður. við vorum átta á braut en bara 6 skráðir til leiks. thea og kristrún skiptust á að gera, svo horfði anna á. en hinir spilararnir voru valgerður, jómbi, aron, óttar og ég. voru það ég og aron sem vorum í topp baráttunni en í síðasta rammanum gerði jómbi sér lítið fyrir og náði fellu, fékk aukaskot og náði aftur fellu, fékka annað aukaskot og náði aftur fellu og fékk þar af leiðandi turkey. með því að ná turky komst jómbi í 120 stig og vann leikinn. jæombi turky. svo skelltum ég og heiða okkur í þythokkey og var þetta bara nokkuð jafn leikur framan af þangað til að ég tók algerlega völd í leiknum og vann 9-2. heiða sá sjaldan til sólar í leiknum.
þurftum við að redda okkur úr keilunni og beilaði frímann á að sækja mig og verður hann því eftir þetta kallaður fríman beiler. þannig að ég, aron, óttar og jómbi tókum saman leigubíl og lenntum á einhverjum killer taxi driver. hann sagði aldrei orð, horfði alltaf beint fram fyrir sig og leit út fyrir að hafa drepið svona fimmtán manns. síminn hans hringdi á meðan við vorum í bílnum svo hann svaraði honum og sagði halló, hlustaði í smá stund og lagði svo á. þetta var alveg freaky. hefði ekki komið mér á óvart ef hann hefði verið að plana einhverja hriðjuverkaárás og menn hans hafi verið að staðfesta að þeir væru búnir að koma sprengjunni fyrir. svo komum við í ms og ég ætlaði að borga fyrir okkur en þá virkaði posinn hans ekki og hann fór að aka eitthvað um með mig einan í bílnum til að reyna að ná betra sambandi sagði hann. mér leist nú ekkert á það og eftir nokkrar tilraunir við að láta posann virka fór ég og náði í aron og hann borgaði með peningum. aron, jómbi og óttar voru allir hræddir um líf mitt þegar þeir sáu útum rúðuna hann eitthvað vera að rúnta með mig einan í bílnum. þetta var life or death situation, ekki spurning um það.
eftir keiluna tókum við því rólega í ms þar til fullu gauarnir fóru að tínast inn um gluggann. voru þeir með mikil læti og hótaði siggi að berja fólk í andlitið. það var mjög skemmtilegt. en þetta fór þó mest friðsamlega fram og sofnaði ég stuttu eftir að þeir komu.
svo var vaknað kl 12 og keyrt heim á sunnudeginum og dottaði ég nánast alla leiðina svo það var ágætt. en er ég að spá í að gefa þessari ferð átta stjörnur af 10 mögulegum og segja það bara gott.
skrifað af criticts 19:41
criticts