jæja, þá er komið að árlegu hönnunarkeppninni hér á criticts.tk sem haldin hefur verið 1. mars frá því að elstu menn muna. byrjar keppnin í kvöld og er til 10. mars. fyrir þá sem ekki vita hvað fellst í þessari hönnunarkeppni að þá skal ég útskýra það.
þessi keppni snýst um það að hanna nýtt útlit á criticts.tk. ég er orðinn leiður á þessu svarta útliti og mér vantar eitthvað nýtt og ferskt. þetta fer þannig fram að þið náið í myndina af criticts kallinum og logo-inu, breytið því eins og ykkur finnst flott og haldið að mér líki og sendið mér svo. verður svo texta og linkum breytt í stíl við litina sem notaðir voru í criticts kallinn.
reglur:
1. það verður að notast við criticts kallinn, hann verður semsagt að vera. má alveg breyta honum eitthvað en hann verður þó að þekkjast. logo-inu má alveg breyta.
2. litir sem notaðir eru í bakgrunninn mega ekki vera svo skærir að þeir skeri í augun.
3. myndin verður að vera á .png formi, ekki jpg. myndin sem þið náið í er .png svo þið skuluð bara ekkert vera að breyta því
4. annað er bara allt frjálst, og skilafrestur er til 10. mars
verðlaun eru 50 kr þannig að það er til mikils að vinna. ég hvet því alla sem ekki nenna að læra eða hafa ekkert að gera að taka þátt í þessari keppni. það er svo einfalt að taka þátt, aðeins þarf að ná í myndina og láta svo ýmindunaraflið reika. hægt er að nálgast myndina með því að smella á > mynd
ef einhverjar spurningar eru að þá bara skrifa það í comment eða tala við mig á msn.
skrifað af criticts 19:23
criticts