úrslit gettu betur voru ma hagstæð, 25-18 ma í vil. stóð tryggvi páll tryggvason sig eins og hetja og svaraði spurningum eins og honum væri borgað fyrir það. eitthvað var samt fólk að kvarta undan hita.. ég var bara nokkuð ágætur þarna aftast verð ég að segja. það var smá hiti en ekkert sem þurfti að vera að nefna aftur og aftur.
fór á hide and seek sem er bara sæmilegasta mynd. nenni ekki beint að vera að renna í gegnum hana en þetta er hrollvekju/plott mynd sem að er bara hin ágætasta skemmtun. fær hún 7 stjörnur af tíu mögulegum hér á criticts.
skrifað af criticts 00:58
criticts