laugardagur, febrúar 19, 2005
miðgarður

nú kemur hér smá færsla um það sem gerðist í gærkvöldi.

byrjaði kvöldið nú bara þannig að ég var heima horfandi á idol. var það bara sæmilegasta skemmtun og var það hún ylfa sem að datt út og fannst mér alveg kominn tími til. að mínu mati er hún hildur vala sigurstranglegust þar sem hún syngur mjög vel og að hún var að fá alveg meira en helming atkvæða í vali rásar 2 á kynþokkafyllstu konu landsins. svo að hún höfðar augljóslega til karlþjóðarinnar jafnt og þeim sem finnst hún syngja vel.

svo fór ég út að keyra og eittthvað um ellefu leitið barst mér símtal um það hvort ég væri eitthvað í stuði til að fara á ball í miðgarði. eftir miklar pælingar og vangaveltur sló ég loks til. var þá förinni heitið með sigga, sigga orra, óla og aroni. var sigurður hákon ökumaðurinn og ætla ég ekkert að fara að uppljóstra hraðanum sem hann var að aka á þar sem að lögreglan er tíður lesandi þessarar síðu. svo komum við í hlíðarbæ. eftir um það bil 20 mín settist einhver gaur á mig þegar ég sat á stól, ég lyfti honum mjög kurteisilega af mér og á borð hliðiná stólnum sem ég sat á en þá fauk sko aldeilis í félagann.. hann hótaði öllu illu og að sagði að ef ég ætlaði að koma í skagafjörð og vera með eitthvað svona rugl að þá yrði ég barinn, skemmtilegt það. svo á sama tíma og gaurinn var að hella sér yfir mig að þá var bankað í gluggann bakvið mig og þar var einhver gaur sem var að gretta og geifla sig eins og einhver kjáni. kom sá drengur svo inn og fór að róa gaurinn niður, svo fór hann að spjalla við mig og svona, en það endaði ekki vel því svo var sá gaur alltaf að klípa í mig á 40 mín fresti. ekki skemmtilegt.
svo ákvað ég að fara út að pissa, þá komu einhverjir þrír gaurar og spurðu hvort ég vildi vera barinn, svaraði ég því neitandiog þá röltu þeir í burtu.
svo spjallaði ég við fullt af fólki sem ég þekkti ekki neitt, fólk var að taka mig fyrir sem einhvern vin davíðs sem að ég þekki ekki neitt og þetta var allt mjög sýrt.

endaði svo með því að ég fékk far með önnu, önnu, theu og kristrúnu heim til akureyrar, reynslunni ríkari um að miðgarður er ekki bjartasti staðurinn fyrir mig til að vera á.


skrifað af criticts 19:35 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3