þar sem criticts.tk er fréttamiðill með meiru að þá tel ég það skildu mína að ræða aðeins um fasteignarheiminn og hvað er að gerast þar. eftir því sem ég hef best heyrt og orðið á götunni er að glæpaklíka í reykjavík er að kaupa hús á reykjavíkursvæðinu beint af verktökum og selja þau svo aftur með 20-30% álaggningu.
held ég að þetta séu fyrstu merki um tilvist íslensku mafíunar. heimildamenn mínir segja að þetta sé aðeins byrjunin en áður fyrr braskaði mafían aðeins með minni hluti t.d. mjólk. nú eru þeir hins vegar að færa sig yfir í stærri hluti svo sem fasteignir. sagt er að mafían sé valdamikil inná alþingi og að um 57% alþingismanna séu í tengslum við íslensku mafíuna og um það bil 40% valdamestu manna íslands eru tengdir henni á einn og annan hátt. hvaða menn þetta eru og hver er yfir mafíunni veit enginn en þó eru til ýmsar getgátur um það.
það sem ég hef oft sagt er að ísland er með spilltustu löndum í heimi. þessu er bara öllu mjög vel leynt og eru blaðamenn þessa lands ekki að standa sig sem skildi, hver veit nema þá að þeir séu að þiggja mútur frá glæpamönnum landsins. fréttamenn fjalla um rótæk spillingarmál en ávalt þegar verið er að nálgast hið sanna hættir þetta að vera fréttnæmt. þetta tel ég allt mjög grunsamlegt.
ætti því fólk eindregið að vera með opin augun gagnhvart ólögmætri álagningu hluta til dæmis í kjörbúðum, tölvumarkaðnum og dótabúðum. eitthvað verður að gerast í þessu landi spillinga
vil ég þó taka það fram að þetta eru mest allt getgátur sem gætu verið sannar og eins ekki
skrifað af criticts 19:09
criticts