föstudagur, janúar 07, 2005
voll

hvað er í gangi þessa dagana vildi ég fá að vita. í dag snéri ég heim eftir dag mikillar geðveiki og lærdóms.. settist niður, fékk mér kex og ákvað að fara í gta: san andreas, þar sem ég er ekki kominn shit áfram í honum. þrýsti ég á takkann sem ræsir sjónvarpstækið, kemur þá ekki eitthvað helvítis óhljóð og var ég viss um að sjónvarpið ætlaði að springa framan í mig. engin var myndin og er ég nokkuð viss um að það sé ónothæft. góð ending sjónvarp. 20-30 ára gamalt, á hápunkti ferils síns og þá tekur það uppá því að drepast. liggur við að maður hafi samband við framleiðandann.

svo þetta þýðir að það verður eitthvað lítið sjónvarp í prófatíðinni sem er svo sem ágætt, en á hinn boginn þarf ég þá að fara í sjónvarpsleiðangur eftir prófin og versla mér nýtt sjónvarpstæki.

prófinn innan fárra daga, stærðfræðipróf fyrst, maður verður að fara að læra svo maður dúxi þetta nú. er búið að vera veðmál í gangi milli mín og annars einstaklings um það hvor fær hærri loka einkunn í stæ. og við erum að tala um enga smá peninga sem eru í veði, 50 krónur, og ætla ég mér ekki að tapa því.

tæknilega séð var síðasti skóladagurinn á þessari önn í dag. ég þarf aldrei aftur að mæta í dönsku, thank you bobby! nema ég falli með stæl og þurfi að taka hana aftur, en ég læt það ekkert gerast.

ég er orðinn hooked á þessum joey þáttum sem er virkilega slæmt, þar sem þetta eru engir hágæða þættir.. sjálfstætt framhald af friends, joey flytur til los angeles til að reyna fyrir sér þar sem leikari, býr með syni systur sinnar og er hún sjál alltaf í heimsókn. þetta er nánast alveg eins og friends nema bara joey húnor, ekkert svona mix match á húmor eins og var í friends þar sem voru fleiri karakterar.

jeb, that´s about it


skrifað af criticts 18:54 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3