þá er aðeins eitt próf eftir, sagan. 8 próf búin og get ég ekki sagt að þau hafi verið mjög seðjandi. hefur bara gengið alveg bærilega í þeim svo ég er bara bjartsýnn á framhaldið.
þá styttist óðfluga í för mína til svíþjóðar. er búið að vera að ákveða hvað gera skal útí svíþjóð og eru komnar ýmsar hugmyndir sem að hljóma skemmtilega. er ég með ýmislegt á prjónunum sem ég þarf að sinna útí svíþjóð, kaupa ýmislegt perus oriam tengt, eitthvað fyrir mig og svo náttúrulega bara getting back to my roots. good old sweden. þetta verður án efa skemmtileg för og verður sennilega allt frábært nema eitt, sænska tónlistin.. alveg spurning hversu mikið maður á eftir að þola af henni. sem betur fer ætla ég að taka ipodinn minn með svo ég þurfi ekki að hlusta mikið á sænskt útvarp.
þættirnir lost.. ég verð að segja að þetta eru þrusu fínir þættir, allavega hef ég ekki getað hætt að horfa á þá. ég held að ég sé núna að upplifa það skeið þar sem ég er að vinna upp allt tapað sjónvarpsgláp á síðasta ári. árið 2004 var mjög dauft hvað varðar þann tíma sem ég eyddi fyrir framan sjónvarpsskjáinn, slæmt mál. svo núna er ég að taka mér tíma í að vinna það allt upp. og ef fólk er að leita sér að einhverjum þáttum til að horfa á að þá mæli ég eindregið með lost, plugged þættir.
svo vil ég bara óska tryggva og félögum hans í gettu betur liði ma til hamingju með það að vera komnir í átta liða úrslit í keppninni, yeb
skrifað af criticts 23:05
criticts