dagurinn var tekinn snemma og vaknaði ég kl hálf fimm um nóttin. leiðin lá beinustu leið útí keflavík. þar mætti ég í flugstöðina einum og hálfum tíma fyrir flug, tékkaði mig inn sem tók kannski svona 2 mín þar sem var lítið um fólk. þar næst rölti ég í gegnum tollinn og sáu þeir ekkert athugavert við það að ég væri að ferðast með 3 flöskur af vaniludropum, enda voru þeir hálf sofandi. svo var ég bara eitthvað að brasa í fríhöfninni, sá ekkert skemmtilegt.
svo tók við flugið sem var bærilegt. get ég ekki kvartað undan ókyrrð en óþægindum get ég sko kvartað yfir. ég sat í sæti 11a sem var einmitt fyrir framan neyðarútgang. hafði það í för með sér að ég gat ekki hallað sætinu mínu aftur en það gat sko aldeilis gaurinn fyrir framan mig og það nýtti hann til fulls. svo ákvað ég að sofna, lagðist framan á dótið sem maður setur matarbakkann sinn á og drykkjaráhöld. svo þegar ég var við það að sofna að þá fékk ég svaka dúndur í hausinn, og svo aftur og aftur.. þannig að ég reisti mig upp og sá þar að í sætið var kominn svona 4 ára krakki að horfa á múlan í fartölvu og var ekki á því að vera rólegur. svo þannig að ég vakti það sem eftir var flugsins, ágætt flug svo sem.
svo fórum ég, jón og hrönn að rölta í danmörku, löbbuðum strikið, fengum okkur kfc sem var í fyrsta skipti sem ég fékk svoleiðis. það var samt allt lokað á strikinu og einhver kona kom og stalkaði okkur, bauð okkur að koma í barrak stresstest sem við afþökkuðum kurteisislega en þá fór hún að segja að við hefðum ekkert betra að gera og fór að elta okkur en hætti loksins eftir svona 50 metra. svo fórum við að skoða ny havn og tók ég ágætlega mikið af myndum sem ég set á thorvaldursn.tk. einnig koma myndir af vaxmyndastyttu safninu sem við fórum á, það var basic. systir mín setti viðvörunarkerfið í gang þegar hún ætlaði að láta mig taka mynd af sér með ensku konungsfjölskyldunni, þá hlupum við og það hætti eftir smá stund.
svo tókum við lest til malmö, og þegar þangað var komið að þá tók systir mín leigubíl með þungu töskuna mína heim til þeirra á meðan ég og jón þurftum að hjóla á hjólunum þeirra heim. svo ég var á hrannar hjóli sem er gamalt bleikt hjól með fótbremsu, nokkuð nett og ég og jón hjóluðum í gegnum miðbæ malmö og meira til á þessum fögru hjólum. og þarna er bannað að hjóla á gangstéttinni svo við þurftum að hjóla með bílunum, stoppa á rauðu ljósi og eitthvað svona madness. en það var stuð og við komumst heim fyrir rest. svo eftir einn þátt af lost að þá var gripið til popppunkt spilsins sem ég hafði keypt fyrir þau og þar vann ég, mikil keppni milli mín og jón tólistarnörds. var þett æsispennandi keppni allt frá byrjun til enda og var ég og jón báðir á síðasta reitnum sem var bjölluspurning, þar var ég fljótari á bjölluna og vann spilið.
svo er það bara bærinn á morgun og eitthvað stuð. perus oriam leiðangur með meiru. svo ég mun blogga það sem gerist hér í svíþjóð og má nú með sanni segja að criticts.tk sé orðið 1/42 sænskt blogg. takk fyrir takk
skrifað af criticts 22:19
criticts