þá er þessari fyrstu prófaviku að ljúka, eitt lífsleiknipróf eftir og þá er henni lokið. þannig að nú þarf ég að fara að læra um fóstureyðingar og svona ef ég ætla að ná þessu prófi.
var í dönsku í gær sem að gekk bara nokkuð vel, lokapróf sem gildir alveg heil 20% á lokaeinkunn. svo var enskan í dag og hún var bara bærileg. get ekki sagt að ég hafi þurft að brjóta mikið heilann í þessu prófi en svo veit maður aldrei nema maður hafi misskilið eitthvað.
ég er að spá í að fara í fjallið í dag þar sem það er mjög svo freistandi. er nefnilega alveg viss um að allur snjórinn á eftir að vera bráðnaður þegar ég kem aftur heim frá svíþjóð. svo ég er að spá í að kíkka eitthvað aðeins í dag.
jáá, sjóræningi sem er að þykjast lifa á steinöld, páfagaukurinn hans er framtíðarsinni og kemur með vélmenni og eitthvað.. plús það að þetta er leikið.. án efa með því verra sem ég hef á ævi minni séð.
skrifað af criticts 13:13
criticts