sunnudagur, janúar 02, 2005
2005

þar sem ég hef oft verið sagður vera skyggn að þá ætla ég að skyggjast inn í framtíðina og sjá hvernig árið 2005 mun vera. verður það eitthvað á þessa leið:

mikið verðum um dramatík á þingi árið 2005, mikil umfjöllun verður um kárahnjúka og mikið verður keypt og selt á íslenska- jafnt sem erlenda markaðnum. íslenskt íþróttafólk erlendis verður mikið í sviðsljósinu og ef mér skillst rétt að þá verður hörð keppni í enska boltanum það sem eftir er af tímabilinu. verður mikið um það að hljómsveitir verða að gefa út nýtt efni árið 2005 og munu einhverjar nýjar hljómsveitir koma upp á yfirborðið. verður mikið um það að bíómyndir komi út árið 2005 með mörgum frægum- auk nýrra leikara sem eiga eftir að gera það gott.


svona hljómaði framtíðarspáin fyrir árið 2005 og næst á dagskrá eru það hlutir sem verða inn og út árið 2005:

úti:

henson föt, að klæðast henson merktum fötum

gítarparty, þar sem fólk mætir með gítar og syngur sömu leiðinlegu lögin s.s. sólstrandagæinn

ben affleck, myndir með ben affleck verða og hafa alltaf verið úti

nokia símar, verða mjög útanlega árið 2005

popptíví tónlistarmyndbönd, verða úti þar sem rúv tekur yfir tónlistamyndbanda bransann

geisladiskar, fara tónlistarmenn að gefa allt sitt efni út á vinyl

greifinn, allir fara skyndilega að pannta pizzur hjá pizza 67

gta san andreas, hætta allir að spila hann og fara að spila hinn classic gta eitt

grænn litur, verður úti og má búast við að blár verði litur ársins 2005


inni:

läkerol, sænska nammið läkerol verður inn árið 2005

gamlir símar, bæði stórir hlunkalegir gsm símar auk heimasíma í eldri kanntinum

körfuboltamyndir, eins og jón nokkur sagði að þá munu körfuboltamyndir koma sterkar inn árið 2005

axlabönd og smekkbuxur, munu tröllríða íslandi árið 2005

slaufur, hættir fólk að ganga með bindi og grípur frekar til gömlu góðu slaufunnar, þó verða þær ekki rauðar á litinn

nintendo, gamla nintendo tölvan mun aftur koma til með að verða vinsælasta leikjatölvan

gömlu turtles þættirnir, rúv fer að sýna þá og munu þeir njóta mikilla vinsælda

perus oriam, verður þessari hljómsveit valin efnilegasta hljómsveit landsins árið 2005


svo ég tel það ráðlegt að þið reynið að lifa eftir þessu árið 2005 og þá ættuð þið að vera í nokkuð góðum málum.

ætla ég ekki að strengja nein áramótaheit en þó er ég með eitt markmið fyrir árið 2005 og er það að redda mér nintendo tölvu + nintendo byssu og duck hunter, auk allra hinna snilldar leikjanna. þannig að ef þið eigið nintendo eða þekkið einhvern sem á nintendo og er reiðubúinn að láta hana af hendi, að þá endilega látið mig vita

svo ég óska bara flestum gleðilegs tvöþúsund og fimm





skrifað af criticts 20:07 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3