komnar eru ýmsar hugmyndirnar um það hvað ég ætla að gera í jólafríinu og eru þær eftir farandi:
læra: eitthvað sem verður að gerast en ég er ekkert alltof spenntur fyrir
perus oriam hljómsveitaræfiningar: þar er góð hugmynd þar sem allt er að gerast þessa dagana hjá perus oriam, komnir með gítar, ein tromma á leiðinni ásamt bongó trommunum tveimur sem ávalt hafa verið til staðar. ég finn á mér að eitthvað stórt eigi eftir að gerast.
lesa íslandsklukkuna: já afhverju ekki, ætla allavega að byrja á henni í kvöld og sjá til hvað gerist eftir það.
horfa á sjónvarp 24/7: svo freistandi
skrifa skáldsögu: kannski maður láti loksins verða af því. ef einhver er með sambönd við bókaútgefendur að þá mega þeir alveg mæla með mér.
meira er ég ekki kominn með en eitthvað verður gert. jú ég ætlaði að reyna að redda mér popppunkts spilinu, reyna að mennta mig aðeins meira í tónlist. svo þeir sem eiga það eða fá það í jólagjöf mega endilega skora á mig.
íslandsklukkan bíður, adios
skrifað af criticts 01:57
criticts