bónus í dag, it was a battlefield.. það var svo stappað þarna. kerrurnar kláruðust, fólk barðist um þær sem losnuðu. mamma var svo sniðug að grípa eina sem var úti og þegar við löbbuðum inn að þá reyndi önnur kona að hrifsa kerruna af mömmu en hún móðir mín tók það ekki í mál og sagði sko konunni að þetta væri sín kerra!
ég var auðvitað settur í það að keyra kerruna, jeez, það var búið að fjölga vörutegundunum þarna þannig að það var allt orðið þrengra og með allt þetta fólk þarna að þá varð mikið um umferðarteppur. sá glæsi ökumaður sem ég er að þá tókst mér ávalt að smjúga milli allra og alls. fór leiðir sem fólk hafði ekki einu sinni ýmindað sér að hægt væri að fara.
en já, þetta var klikkun
svo eru bloggarar þessa heims í gríð og erg að setja inn lista á bloggið sitt um ýmislegt.. það sem stóð uppúr á árinu, hvað verður inn og út á næsta ári og áfram mætti telja. hef ég ákveðið birta þannig lista eða hvað ég ætla að gera á nýju ári/hvað verður inn og út.. bara eitthvað sem mér dettur í hug. ætla ég að vera svoltið glamúr á þessu og birta þennan lista á nýju ári.
over and out
skrifað af criticts 03:57
criticts