jæja, þá eru jólainnkaupin á enda, skrapp með tp og birkik að versla jólagjafir. gekk þetta bara svona ofur vel að við gátum svo skellt okkur heim til mín og spilað nba street vol.2 sem er án efa besti leikur sem til er, allavega eins og stendur.
ég sem ætlaði að læra eitthvað yfir hátíðirnar en þar sem þessi leikur datt uppí hendurnar á mér að þá sé ég ekki mikinn lærdóm fyrir höndum.
jólin eftir 3 daga, get ekki sagt að ég sé í miklu jólaskapi. ætli það sé útaf því að hrönn sé ekki hérna? neh, ég held að það séu frekar rjúpurnar. nei annars er voða slæmt að hrönn sé ekki hérna, sérstaklega þar sem við höldum jólaboðið í ár fyrir fjölskylduna þar sem ættin mætir og snæðir saman. er verið að gera rótkækar breytingar á heimilinu. skápurinn, sem hefur alltaf verið uppvið sjónvarpssófann, hefur nú verið skrúfaður í burt og er hann núna á ganginum. varð að rúma fyrir borðstofuborði sem lelli, bróðir pabba á. svo þetta verður eitthvað massiv massiv.
o well, adios
skrifað af criticts 03:10
criticts