mánudagur, desember 06, 2004
husavík music festival

var fátt að gerast í akureyrarbæ föstudaginn 3. des og var ég með mjög lítið á prjónunum. barst mér svo sms skeyti sem innihélt þá spurningu hvort ég væri til í að kíjka á tónleika með maus á húsavík. greip ég þetta tækifæri, klæddi mig í menningalegu fötin og lagði af stað til húsavíkur með 5 öðrum drengjum. ferðuðumst við til húsavíkur á svörtum saab og verð ég að segja að það var dálítið þröngt á þingi í aftursætinu þar sem við sátum fjórir. var það sigurður hákon sem ók bílnum, sigurður orri sat framí og í aftursætinu húktu ég, óli, raggi og tryggvi.

ferðin gekk vel fyrir sig og á meðan við vorum að keyra var mér tjáð það að dáðadrengir væru einnig að spila, svo ég varð bara ánægður með það. svo komum við á tónleikarstað eftir að siggi hafði farið á olís stöð til að fá kort af húsavík svo hann gæti ratað í skólann þar sem tónleikarnir voru haldnir. við borguðum okkur inn og sáum að dáðadrengir voru í fullu fjöri er við mættum til leiks. svo tók ég mig til og skoðaði miðan sem ég fékk og sá þar að á undan dáðadrengjum hefði veirð hljómsveitin tony the pony og að einnig ættu sign eftir að spila. gladdi þetta mig mjög þar sem mér finnst sign bara nokkuð góðir og hef ég alveg verið til í að sjá þá á tónleikum.

dáðadrengir voru fínir, tóku tvö jólalög ásamt því að spila sín reglulegu dáðadrengjar lög, bara smá, allar stelpur úr að ofan, jesú er inn í nintendo tölvunni minni og margt fleira. var mikil stemning á meðan þeir spiluðu, þó að fólk hafi kannski ekki beint verið að rífa sig úr fötunum og stígið trillta dansa, en það var fjölmennt.

á eftir dáðadrengjum komu sign. ragnar sólberg með sitt síða hár, í svartri rifinni treyju, sundurklipptum gallabuxum utanyfir svörtu leðurbuxurnar með slatta af augnskugga ásamt restinni af hljómsveitinni sem var ekkert alltof fríð. en þeir meiga þó eiga það að þeir kunna að spila tónlist. var þetta þunglyndis sjálfsvígs rokk af bestu gerð og þandi ragnar sólberg raddböndin af stakri snilld. var augljóst að fólk var vel með á nótunum hverjir þetta væru enda tóku allir tónleikagestirnir vel undir.

það sem á eftir sign kom er ég ekki alveg viss um hvað var. 2 menn, annar í engla búning, hinn í jólasveinabúning, að tala um hvernig okkur líkaði tónleikarnir. svo fóru þeir að tala um box og dansa ansalegann dans á sviðinu syngjandi "dösnum við í kringum..." sem endaði svo með því að þeir þóttust vera að slást með tilgerandi hljóðum. Var þetta án efa dapurlegasta framkoma og tilraun til kímni af einhverju tagi. svo við tölum um húmor að þá var ekki mikið um hann á svæðinu, húsvíkingar að segja leiðigjarnar sögur um allt og ekkert og voru þetta nánast bara leiðindi. ef engin hefði verið tónlistin að þá hefði þetta verið hreint helvíti.

en eftir þessa döpru sviðsframkomu húsvíkinga komu að lokum maus. spiluðu þeir í dágóðan tíma, tóku nokkur ný lög í bland við gamalt og gott sem allir könnuðust við. en á meðan maus voru að spila að þá fækkaði verulega í húsinu og varð mér þá nokkuð ljóst að megnið af fólkinu hefði mætt í þeim tilgangi að sjá sign. allavega voru allir drengirnir með hár niðrá rass í deathmetal bolum horfnir á braut. en ég naut þess að hlusta á maus og voru þeir bara hin fínasta skemmtum auk þess að ég græddi bassanögl, magnað það.
svo í heild var husavík music festival-ið bara nokkuð gott, allavega það sem ég sá og heyrði. alltaf gaman að fara á tónleika og ekki er það verra þegar hljómsveitir sem maður unnir ágætlega eru að spila. á heimleiðinni var það sama uppá teningnum, siggi á 150 km/klst og vissi vart hvenær beygjur komu. en við komumst heim óskaddaðir þannig að ég hef ekki undan neinu að kvarta. ætla ég svo að gefa dáðadrengjum 6 stjörnur af 9 mögulegum, sign 7 stjörnur af 9 mögulegum og einnig maus 7 stjörnur af níu mögulegum. húmor húsvíkinga fær hins vegar aðeins eina stjörnu af 9 mögulegum.

dáðadrengir: ******
sign: *******
maus: *******
húmor húsvíkinga: *


skrifað af criticts 19:29 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3