auðvitað er það geimstofan sem stendur fyrir tónleikum á akureyri, að þessu sinni var það geimgigg #2 og hljómsveitirnar sem komu fram voru solid i.v, jan mayen og mínus.
fyrsta hljómsveitin til að stíga á stokk var hljómsveitin solid i.v. hafði ég heyrt eitt til tvö lög með þeim sem voru í spilun á x-inu sem voru bara bærileg og bjóst ég við svo sem alveg þokkalegu showi frá þeim. en annað kom á teninginn og reyndist þetta vera hreint út sagt hörmuleg hljómsveit live. allavega minnir mig að lögin þeirra hefðu verið betri í útvarpinu. en þeir spiluðu í dágóðan tíma og sat maður bara og "naut" tónlistarinnar. ég held að ég skelli tveimur stjörnum af fjórum mögulegum á hljómsveitina solid i.v.
næst á svið var það hljómsveitin jan mayen og var það sú hljómsveit sem ég var spenntastur fyrir að sjá. var ég búinn að lesa ýmislegt gott um þessa hljómsveit eftir að þeir gáfu út sína fyrstu ep plötu árið 2003. kom hún út í 200 eintökum og seldist upp strax. svo var ég einnig búinn að kynna mér fyrsta safndisk þeirra sem heitir home of the free indeed og kom út í október á þessu ári og fannst mér hann nokkuð góður þannig að ég var bara mjög spenntur fyrir því að sjá þá performa á sviði. svo maður reif sig uppúr sætinu þegar þeir byrjuðu að spila og dröslaði sér í átt að sviðinu. get ég ekki sagt annað en að ég hafi fengið það sem ég vonaðist eftir sem var skemmtileg sviðsframkoma og góður tónlistarflutningur. voru það sérstaklega lögin nonsence, shut up/down, the new way og the next victim sem sem heilluðu mest en í heild var þetta bara hreint magnað show hjá hljómsveitinni jan mayen. fá þeir hikluast fjórar stjörnur af fjórum fyrir skemmtilega framkomu og góða tónlist.
svo var röðin komin að mínus mönnum. verð ég reyndar að viðurkenna að ég sá ekki alveg allt með þeim, missti þarna aðeins af fyrstu 3-4 lögunum en var mættur til að ná endanum. það sem að ég sá var bara stórgott, létu þeir öllum illum látum á sviðinu eins og þeir gera best og var mikil stemmning meðal áhorfenda. sýndist manni þeir þó vera örlítið fullir og jafnvel á einhverjum vafasömum lyfjum en það eru engar öruggar heimildir fyrir því. þó sá ég reyndar þegar þeir yfirgáfu sviðið og voru á leið upp tröppur baksviðs að þá hafði krummi enga orku í að komast upp tröppurnar og lá þar í miklu svitakófi og svo þegar þeir voru klappaðir upp að þá rétt svo náði hann að drösla sér uppá sviði, með öðrum orðum skreið hann upp á sviðið. getur vel verið að hann hafi bara verið þreyttur en måske voru vafasömu lyfin að segja til sín, þori ekki að fullyrða neitt. en annars voru þeir magnaðir og spiluðu mjög vel og fá fullt hús stjarna, fjórar stjörnur af fjórum mögulegum, fyrir sýna framkomu.
svo þessir tónleikar voru bara mjög góðir þegar á heildina var litið og bíð ég spenntur eftir geimgigg #3
solid i.v: **
jan mayen: ****
mínus: ****
skrifað af criticts 19:20 criticts