þar sem ég hef verið ákkúrat andstæðan við það að vera duglegur að skrifa gagnrýnir uppá síðkastið að þá ætla ég að fara að taka mig á, binda 50 kg lóð við löppina á mér og losa þau ekki fyrr en ég er búinn að skrifa sirka 100 gagnrýnir.
einnig er ég búinn að vera að hugsa um að redda mér einhverjum sponser. það hlýtur að vera til hellingur af fólki sem er til í að sponsera mig á einn eða annan hátt. ég er að spá í að leggja kannski leið mína í borgarbíó og bt eða bara jafnvel skrifa þeim e-mail og athuga hvort þeir eru ekki meira en tilbúnir í að sponsera mig. eins og sést er nóg auglýsingapláss á síðunni þannig að hægt ætti að vera að koma einhverjum auglýsingum fyrir. þannig að ekki láta ykkur bregða þó að þið sjáið bt músina í stað criticts kallsins einn góðan veður daginn.
það sem ég hef planað að gagnrýna á næstunni er: diskurinn change með hljómsveitinni dismemberment plan, diskurinn good news for people who love bad news með modest mouse, måske san andreas ef ég kem höndum mínum yfir hann einhverstaðar og svo svo veit maður aldrei nema maður taki sig til og gagnrýni fm-krúið hans ragga. þannig að þetta er allt væntanlegt á næstu dögum.
svo er fyrsta fótbolta æfingin í 2 ár hjá mér á morgun. verður það eitthvað fróðlegt og sennilega gífurlega skemmtilegt. þó líka erfitt þar sem ég var að frétta að míló er þjálfarinn og er hann maður sem lét stráka í 7. flokki taka suicide á æfingum. fékk hann reyndar líka skammir í hattinn frá foreldrum þar sem drengir þeirra voru alveg búnir eftir æfingar og höfðu varla orku til að borða. en ég bíð spenntur, ekki spurning.
so that´s all folks!
skrifað af criticts 23:30
criticts