jæja, vegna margra kvartanna sem hafa borist mér í tölvupósti og pósti á bréf formi, skiltum sem eru í tugatali fyrir utan heimili mitt og hótana sem mér hafa borist í síma, að þá hef ég ákveðið að breyta stjörnugjafakerfi mínu. nú verða gefnar stjörnur frá einum og uppí 9 þar sem 9 er best eins og alltaf og einn er lægsta einkunn. mun ég einning verða miskunnarlausari en nokkru sinnum fyrr og þurfa hlutir sko aldeilis að vera í topp standi til að fá níu.
það fyrsta sem ég hef tekið að mér að gegnrýna með mínu nýja kerfi er aksturshæfileikar birkirs k. maðurinn sem mest hefur kvartað undan stjörnugjöfum mínum verður sá fyrsti sem er gagnrýndur með því nýja. tilviljun? veit það ekki. en allavega var ég að keyra með birki ásamt þremur öðrum ungum herramönnum og ákveður sá umtalaði birkir að bregða sér á hinn gífurlega skemmtilega rúnthring akureyrarbæjar. vill svo ekki betur til að hann pikkfestir bílinn á vart hálfsmeters hárri hraðahindrun sem ætti þó að teljast þó nokkuð mikið afrek, en þó ekki nærri jafn mikið afrek og að takast að festa bílinn aftur á sömu hraðahindrun á næsta hring. hægt er að lesa nánar um þetta joy ride á www.nezitic.tk.
ætla ég mér að gerast svo kræfur og gefa aksturshæfileikum hans heilar fjórar stjörnur af níu en er þó nokkuð augljóst að skemmtanagildi þess að vera í bíl með birki þegar hann er að keyra fær alveg heilar átta stjörnur af 9 mögulegum. alltaf lendir maður í ævintýrum með birki í bíl.
aksturshæfileikar: ****
akstursskemmtun: ********
skrifað af criticts 21:49 criticts