fimmtudagur, nóvember 25, 2004
fm-krú

þá er komið að því að skrifa þessa eftirsóttu gagnrýni um hið umtalaða fm-krú. byrjum á aðalatriðunum; samansafn af venjulegum drengjum sem eru engu öðruvísi en meðalmaðurinn en eiga það þó allt sameiginlegt að vilja verða hnakkar, fara saman í ljós og versla sér þröngar gallabuxur. hefur hver meðlimur þessa hóps fengið nafn sem hæfir hnakka og eru tölustafir einkennandi fyrir nöfnin og því hærri sem tölurnar eru því hærra ertu settur í virðingu og völdum.

þessum hóp er stjórnað af manni að nafni ragnar hólm, alias, raggzmastah3000. er hann hæst settur og allir sem á eftir honum koma hafa lægri tölur í sínum nöfnum. er það í verkahring ragnars að finna nöfn á nýja meðlimi, skipuleggja hóptíma í ljós, ráðleggja mönnum um klæðaburð og svo margt margt meira.

krúið sjálft er þó nokkuð ungt að árum en hefur þó alltaf stækkað og stækkað. opinberlegt lag fm-krúsins er lag að nafni dragostea din tei með hljómsveitinni ozone. verð ég að segja að ég er mjög á móti þessu lagi þó að það komi þessari gagnrýni ekkert við, varð bara að koma þessari skoðun minni á framfæri. en já, er það semsagt spiað á þeirra samkomum. má sem dæmi um það að í skálaferð annars x tóku nokkrir meðlimir þessa hóps tóku sig til og héldu einhverja mínútna party á klukkutíma fresti þar sem þetta lag dundi í græjum staðarinns. eftir því sem ég fékk best vitað voru þeir með 5 útgáfur af þessu lagi. ein útgáfa er nógu slæm að mínu mati en allir hafa mismunandi áhuga á tónlist. en hvað gerðist í þessum party-um þeirra veit enginn um nema þá þeir sjálfir. kæri ég mig ekkert um að vita hvað gerðist bakvið hurð þess herbergis í skálanum sem nýtt var fyrir þessi party en af ljótu sýnidæmi sem ég varð fyrir að þá er þetta eitthvað sem ég var nokkuð viss um að ég vildi eiga engann þátt í þessari samkomu. verður nafn þessara party-a ekki nefnt hér þar sem mér finnst þetta mjög ósmekklegt nafn.

af annari starfsemi félagsins er að frétta að þeir séu avált að skipuleggja hópferð í ljós sem einhvernvegin fer alltaf í vaskinn en þó trúa þeir statt og stöðugt að hún eigi eftir að verða að veruleika einn daginn. einnig hafa þeir ákveðið að gera boli merkta fm-krúinu og á honum mun vera lógo krúsins, nafn meðlims og mottó hópsins sem hljómar svo: "beauty is pain" verða þessir bolir gerðir handa hverjum meðlimi en þó geta sennilega áhugasamir, sem ekki eru tilbúnir að binda sig fm-krúinu, fengið gestabol.

talað er um að hin umtala heimasíða þeirra muni koma upp fyrr en fólki grunar en þó er ekki víst hver sér um smíði hennar. hef ég verið bendlaður við það verk en hef ég þó neitað nokkurri aðild að því og mun ég enn gera það sama hversu mikið ragnar tuðar í mér.

í heildina litið er þetta bara ágætt samansafn af manneskjum sem eru að reyna að verða hnakkar og eru á ágætri leið að verða það. er þetta ágætis framtak hjá þeim og sennilega mikil hjálp fyrir þá sem vilja verða hnakkar en þora því ekki vegna fordóma og margra annara hluta. þarna geta þeir leitað í félagsskap hjá mönnum sem eru á saman plani og þeir sjálfir. svo ég hef ákveðið að gefa þessum hóp einar fjórar stjörnur af fjórum mögulegum fyrir gott framtak og að vera ekkert að fela hverjir þeir eru.

fm-krú: ****




skrifað af criticts 01:38 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3