det er en helt fantaststisk film, svo maður nýti sér nú aðeins tungumála kunnáttu sína.
en eins og ég segi að þá er eurotrip bara nokkuð góð mynd. mikið um grín og sprell og sérstaklega skemmtilegt atriði þar sem fótboltabullur man utd. koma við sögu, með sjálfan vinnie jones í broddi fylkingar. eru leikararnir í myndinni ekki mjög þekktir og aðalega er þetta allt fólk sem hefur leikið aukahlutverk í vinsælum sjónvarpsþáttum eða talað inn á teiknimyndir. einnig sést þarna matt damon taka eitt stutt lag en meira er það nú ekki. svo var það reyndar einn leikari að nafni jacob pitts sem var nokkuð góður, lék aulalega/heimska gaurinn, og ekki ósvipaður leikara nokkrum að nafni david spade. er hann af sjálfsögðu mikill snillingur og hvet ég alla til að sjá eitthvað með honum.
var nokkuð um að fyrirtæki auglýstu eitthvað í myndinni og má taka sem dæmi um það myndavélafyrirtækið leica. var ein af aðalpersónunum alltaf með leica myndavél sem enginn mátti snerta. svo voru þarna pepsi sjálfssalar og einhver svona smá atriði. reyndar spilaði myndavélin svolítið stórt hlutverk í myndinni þannig að það er ekki víst að þetta hafi verið einhver sérstök auglýsing frá leica. en hver veit, langaði bara að benda á þetta. ekki væri ég neitt á móti einni leica vél.
annars var myndin bara nokkuð frumleg og ekki mjög mikið um klisjur sem vanalega eru í svona gaman myndum. þannig að myndin hlýtur bara topp einkunn, 4 stjörnur af fjórum mögulegum og er þetta upplögð mynd fyrir fólk sem er í leit af góðri, ruglaðri gaman mynd.
eurotrip: ****
skrifað af criticts 22:52
criticts