það hlaut að koma að því einn daginn að ég sæi einn af þessum umræddu bingó þáttum á skjá einum. var þetta reyndar endurtekinn þáttur en held ég að það sé skemmtilegra að sjá þetta live. verð ég að segja að ég bjóst ekki við miklu, hefur villi verið í mörgum sjónvarpsþáttum uppá síðkastið, svo sem at og úti að grilla með kára og villa, og hafa þeir ekki höfðað mikið til mín en verið svo sem alveg lala. þannig að ég vissi ekki alveg við hverju ég átti að búast. villi með bingó þátt.. tjahh, hljómaði ekki vel. en annað kom sko á daginn. eru þetta stórskemmtilegir þættir þar sem villi fær loksins sjónvarpsþátt þar sem hann fær útrás fyrir athyglissýki sinni sem er bara magnað.
og ekki eru sko vinningarnir af verri endanum. maður sem fékk 40 kg af hrísgjrónum, garðslöngu, þráðlaust lyklaborð, playmo og margt margt fleira skemmtilegt. svo var annar sem fékk psx2 tölvu ásamt fullt af leikjum og dvd myndum þannig að þetta er ekkert slor. og talandi um slor að þá er möguleiki á því að vinna bíl! og hvílíkir lúxus bílar sem þarna eru, uss suss suss. var reyndar mikið um að þessir bílar voru svona bílar sem erfitt er að selja. ég meina, ekki allir sem eru spenntir fyrir því að kaupa tveggja dyra opel astra sem er dísel bíll. en það er bara allt mjög persónubundið.
þannig að það er nokkuð augljóst að ég bíð spenntur og tilbúinn með bingóspjald þegar næsti þáttur verður, sem er á sunnudaginn held ég.. ekki alveg pottþéttur á því. en ég hvet allavega alla til að fylgjast með og endilega taka þátt, örugglega þrælskemmtilegt.
bingó þátturinn á skjá einum með villa naglbít fær því hiklaust fjórar stjörnur fyrir frumleika og mikið skemmtanagildi.
bingó: ****
skrifað af criticts 23:08
criticts