þar sem snjór er umtalaður á öllum bloggum að þá hef ég ákveðið að láta ekki mitt eftir liggja og vera svolítið mainstream þar sem ég er það aldrei.
snjór er fínn, en hann á heima í fjallinu og ekki í bænum. snjór í bænum er slæmt mál sem leiðir það af sér að ég get ekki keyrt minn græna renault mégan þar sem hann er aðeins framhjóladrifinn og á naglalausum snjódekkjum og á því lítið í svellin sem nú einkenna vegi akureyrar bæjar.
þannig að ég legg að til að fólk akureyrar bæjar taki höndum saman og taki sér skóflu í hönd. er plan mitt það að hver manneskja sem komin er yfir vissan aldur, sem enn er ekki ákveðinn, taki sig til og moki alveg slatta og svo koma stórar gröfur, litlir bob cat-ar og allskyns flutningabílar og flytja snóinn upp í fjall. þá verður enn þá meiri snjór upp í fjalli en er núna og þar af leiðandi miklu skemmtilegra fyrir alla sem eru á snjóbrettum, skíðum eða einhverskonar skíða iðkunar apparötum.
er einmitt mjög farið að hlakka til að komast á snjóbretti, svo við skulum drífa í þessu!
skrifað af criticts 19:01
criticts