eins og vitað var að þá tók ég mig til og skellti mér í sjallan í gær. með þeirri för minni freistaði ég þess að fara á afburðar tónleika með ensími og brain police.
mér til undrunar voru það meðlimir ensími sem stigu fyrstir á svið en var ég búinn að búast við brain police fyrst. þetta er kannski skiljanlegt þar sem vinsældir ensími hafa dalað með árunum en brain police njóta mikilla vinsælda nú á dögum.
um ensími er það að segja að þeir spiluðu ágætlega og soundaði þetta allt mjög vel, en.. verð ég að segja að þeir hafi verið með óveju lélegt val á lögum sem þeir spiluðu. mátti jújú alveg heyra þekkt lög en þó var mikið um lög í þyngri kanntinum sem ekki höfðu heyrst áður og minntu þessi lög mig mikið á vampírur, veit ekki afhverju en þetta voru bara eitthvað vampíruleg lög. að mínu mati er það allt í lagi þegar hljómsveit tekur kannski eitt nýtt lag á tónleikum en þetta var fullmikið. tónleikar eru að mínu mati til að spila lög af útkomnum plötum frá hljómsveitinni þannig að fólk sé með á nótunum hvað er í gangi. þarna tókst það alls ekki, fólk virtist gáttað og myndaðist aldrei nein sérstök stemmning. þannig að á heildina litið var hljómsveitin góð og skilaði lögunum vel frá sér en aftur á móti var lagaval lélegt og vegna þess hef ég ákveðið að gefa ensími 3 stjörnur af 4 mögulegum. ég bjóst við svo miklu meiru af þeim.
svo voru það meðlimir hljómsveitarinnar brain police sem mættu á sviðið. varð það strax augljóst að meirihluti mannfjöldans sem saman var kominn í sjallan var þarna mættur til að hlusta á brain police því um leið og þeir mættu á svið að þá fylltist gólfið. ég er ekki mikill brain police aðdáandi sjálfur en þeim tókst að skemmta flestu hinu fólkinu mjög vel og skapa mikla stemmningu. þeir spiluðu vel og þó sérstaklega gítarleikarinn og trommarinn sem fóru á kostum. að mínu mati fá þeir 3 stjörnur af fjórum, en er ég nokkuð viss um að margir séu mér ósammála um það. þannig er það nú bara.
einnig brutust nú reyndar út slagsmál í enda tónleikanna þar sem kom til kýlinga og sparka í kvið og andlit, en það var svo stoppað af. þó fóru menn út sjálfviljugir og héldu, eftir því sem best er vitað, slagsmálunum áfram utandyra. ekki er vitað hvernig þau enduðu.
ensími: ***
brain police: ***
skrifað af criticts 17:50
criticts